SDR og þrýstiþol röra

Hvað SDR-talan segir um samband ytra þvermáls og veggþykktar röra og hvernig hún tengist innra þvermáli, þrýstiþoli og flutningsgetu.
NORVION ACADEMY · FRÓÐLEIKUR

SDR og þrýstiþol röra

Hvað SDR-talan segir um samband ytra þvermáls og veggþykktar röra og hvernig hún tengist innra þvermáli, þrýstiþoli og flutningsgetu.

SDR er ein algengasta leiðin til að lýsa hlutfalli milli ytra þvermáls og veggþykktar plaströra. Lægri SDR-tala þýðir hlutfallslega þykkari rörvegg.

SDR
GRUNNHUGTAKIÐ

SDR er hlutfall ytra þvermáls og veggþykktar

Sama SDR-hlutfall helst óháð rörastærð. Því lægri sem SDR-talan er, því meiri er veggþykktin miðað við ytra þvermál.

01
SKILGREINING

Hvað þýðir SDR?

SDR stendur fyrir Standard Dimension Ratio og lýsir hlutfallinu milli ytra þvermáls rörsins og veggþykktar þess.

SDR = OD / e
SDR Hlutfall OD / e
OD Ytra þvermál mm
e Veggþykkt mm

Ef ytra þvermál og SDR eru þekkt má nálgast veggþykktina með:

e = OD / SDR
02
SAMANBURÐUR

Lægri SDR-tala þýðir þykkari vegg

Tökum tvö rör með sama ytra þvermál. Ef annað er SDR11 en hitt SDR7,4 verður SDR7,4 rörið með þykkari vegg.

SDR11
ID
Þynnri veggur Stærra innra þvermál
VS
SDR7,4
ID
Þykkari veggur Minna innra þvermál
Hærra SDR → þynnri veggur
Lægra SDR → þykkari veggur
DÆMI · Ø63 PE-Xa

Sama ytra þvermál – mismunandi SDR

Hér sést áhrif SDR mjög skýrt. Bæði rörin hafa 63 mm ytra þvermál en veggþykktin er mismunandi.

SDR11 63 × 5,8 mm
Ytra Ø 63,0 mm
Veggþykkt 5,8 mm
Innra Ø 51,4 mm
SDR7,4 63 × 8,7 mm
Ytra Ø 63,0 mm
Veggþykkt 8,7 mm
Innra Ø 45,6 mm
SDR11 63 − (2 × 5,8) = 51,4 mm ID
SDR7,4 63 − (2 × 8,7) = 45,6 mm ID
Mikilvægt:

Þótt bæði rörin séu Ø63 er raunveruleg vatnsrás ekki sú sama. Það hefur bein áhrif á rennslishraða og flutningsgetu.

03
INNRA ÞVERMÁL

SDR hefur áhrif á rennslisflatarmálið

Þegar veggþykktin eykst minnkar innra þvermálið ef ytra þvermálið helst óbreytt.

ID = OD − 2e

Innra þvermálið er síðan notað til að reikna raunverulegt þverskurðarflatarmál vatnsrásarinnar:

A = π × ID² / 4
Ø63 SDR11 51,4 mm ID ≈ 2.075 mm² rennslisflatarmál
→
Ø63 SDR7,4 45,6 mm ID ≈ 1.633 mm² rennslisflatarmál
SDR7,4 rörið í þessu dæmi hefur um 21% minna rennslisflatarmál.

Það þýðir að við sama rúmmálsrennsli verður rennslishraðinn meiri í SDR7,4 rörinu en í SDR11 rörinu.

04
ÞRÝSTIÞOL

Hvernig tengist SDR þrýstiþoli?

Fyrir sama efni og sama ytra þvermál gefur lægri SDR-tala þykkari vegg. Það er ein af lykilforsendunum sem hafa áhrif á hversu mikinn innri þrýsting rörið getur þolað.

En SDR-talan ein og sér segir ekki leyfilegan vinnuþrýsting. Einnig þarf meðal annars að taka mið af efni rörsins, hitastigi, vörustaðli og hönnunarforsendum.

1 SDR Hlutfall OD og veggþykktar
→
2 Veggþykkt Lægri SDR = hlutfallslega þykkari veggur
→
3 Þrýstiþol Metið með efni, hita og staðli
!
Ekki jafna SDR sjálfkrafa við PN.

Tvö rör með sama SDR geta haft mismunandi leyfilegan vinnuþrýsting ef efni, hitastig eða vörustaðall er mismunandi.

DÆMI ÚR PE-Xa KERFI

SDR11 og SDR7,4 við 80°C

Dæmið hér að neðan sýnir hvers vegna mikilvægt er að skoða vörugögnin sjálf en ekki álykta um vinnuþrýsting út frá SDR-tölunni einni.

PE-Xa · SDR11 6 bar við 80°C
PE-Xa · SDR7,4 10 bar við 80°C

Gildin hér eru dæmi úr viðkomandi HeatFlex / PE-Xa vörukerfum og eiga ekki að túlka sem almenna þrýstireglu fyrir öll SDR11 eða SDR7,4 rör.

05
HÖNNUN

Þrýstiþol og flutningsgeta fara ekki alltaf saman

Þykkari veggur getur verið nauðsynlegur vegna þrýstingskröfu, en hann minnkar jafnframt innra þvermál rörsins.

ÞRÝSTIÞOL Þykkari veggur
↑
SDR
INNRA ÞVERMÁL Minni vatnsrás
↓

Þess vegna þarf við val á rörastærð að skoða bæði þrýstikröfur og vökvafræðilegar forsendur kerfisins.

HVAÐ ÞARF AÐ SKOÐA?

SDR er aðeins einn hluti af röravalinu

01 Efni

PE100, PE-Xa og önnur plastefni hafa mismunandi eiginleika og hönnunarforsendur.

02 SDR

Segir hlutfall ytra þvermáls og veggþykktar.

03 Hitastig

Rekstrarhitastig getur haft áhrif á leyfilegan vinnuþrýsting.

04 Vinnuþrýstingur

Velja þarf rörakerfi sem uppfyllir þrýstikröfur verkefnisins.

05 Innra þvermál

Raunverulegt ID ræður rennslisflatarmáli og hefur áhrif á hraða og þrýstifall.

06 Vörustaðall

Staðlar og gögn framleiðanda skilgreina endanlegar rekstrarforsendur vörunnar.

MUNA

Lægra SDR = hlutfallslega þykkari rörveggur.

En SDR segir ekki alla söguna. Við val á röri þarf að skoða efni, hitastig, þrýstikröfu, veggþykkt og innra þvermál saman. Innra þvermálið hefur síðan bein áhrif á rennslishraða, þrýstifall og flutningsgetu.

Athugið

SDR lýsir hlutfalli röramála en er ekki eitt og sér staðfesting á leyfilegum vinnuþrýstingi. Við endanlegt vöruval skal ávallt styðjast við viðeigandi staðla og tæknigögn framleiðanda.