Helstu samstarfsaðilar Norvion


Norvion býður upp á fjölbreytt lagnaefni í heildsölu frá þekktum gæðaframleiðendum:

agru býður upp á hágæða PE- og PP-rör, suðufittings og rafsuðufittings fyrir öll helstu verkefni. Að auki er vöruúrvalið mjög víðtækt og nær til fjölbreyttra lausna fyrir vatn, fráveitu, iðnað og orku.

RK Infra er framleiðandi á foreinangruðum hitaveiturörum, bæði sveigjanlegu PEX-i og stáli. Lausnir fyrirtækisins eru hannaðar fyrir örugga og hagkvæma dreifingu á heitu vatni og hita, með áherslu á gæði, lágt varmatap og langan líftíma.

Rototec er framleiðandi á hágæða PE tönkum fyrir vatnsmeðhöndlun, fráveitu, dælustöðvar o.fl. Fyrirtækið býður einnig fjölbreytt úrval af fituskiljum, olíuskiljum og öðrum innviðalausnum.

Macoga er leiðandi framleiðandi á þönum og býður upp á fjölbreyttar lausnir fyrir hin ýmsu kerfi. Svo sem hitaveitur, gufuafl, vatnsafl, olíu og ýmsan iðnað.

HWM býður upp á sérhæfðan mæla- og eftirlitsbúnað fyrir vatns-, fráveitu-, og hitaveitukerfi. Lausnir þeirra bjóða upp á rauntímamælingar á vatnsgæðum.

Ratmon býður upp á heildstætt lekaviðvörunarkerfi fyrir hitaveitur sem byggir á tveggja víra kerfi og rafleiðnimælingum.

Teekay er framleiðandi á lagnatengjum fyrir ýmis rörakerfi. Lausnir fyrirtækisins gera kleift að tengja eða gera við rör án suðu, sem styttir uppsetningartíma og/eða lágmarkar rekstrarstöðvanir.

Vonroll Hydro sérhæfir sig í Ductile lausnum fyrir vatnsaflsverkefni. Vonroll Hydro bjóða einnig upp á brunahana og búnað fyrir brunavarnir.

STAR Piping Group býður upp á PE- og PP rör og fittings og hafa mjög mikla sérsmíðagetu. Lausnir þeirra henta sérstaklega vel fyrir sérverkefni í dælustöðvum, fiskeldi og öðrum iðnaði.

REMBE býður upp á sérhæfðar öryggislausnir fyrir þrýstijöfnun, yfirþrýstingsvörn og sprengivarnir í orku- og iðnaðarkerfum.

dipa GmbH framleiðir sérhæfðar rörafestingar, röraupphengjur, klemmur, stoðir og aðrar festingar fyrir lagnir. Vörur þeirra henta fyrir öll lagnakerfi og fást úr mismunandi efnum.

FRANK GmbH sérhæfir sig í fráveiturörum í stórum þvermálum og býður upp á mikla sérsmíðagetu. Sérlausnir í brunnum, tönkum og öðrum mannvirkjum, þar sem krafist er nákvæmrar hönnunar, styrks og áreiðanleika.

GEOPLAST framleiðir m.a. Aquabox kerfið fyrir söfnun, geymslu og síun regnvatns sem dregur úr flóðahættu og bætir vatnsnýtingu. Einnig framleiða þeir jarðvegsgrindur fyrir bílastæði og yfirborð sem sameina burðarþol og gegndræpi.

CEGA sérhæfir sig í samskeytum og tengilausnum fyrir einangruð rör. Þeir bjóða upp á heildstætt kerfi í þöndum og rafsoðnum hólkum.

SEALFORLIFE framleiðir flestar gerðir krumpu- og þéttiefna fyrir hitaveitusamskeyti og aðrar lagnir þar sem þörf er á að þétta samskeyti. 

Radius CTS framleiðir meðal annars kapalrör fyrir ljósleiðara og einnig brunna og stakkabox sem henta ekki aðeins fyrir ljósleiðaralagnir heldur einnig fyrir vatns-, fráveitu-, rafmagns- og aðrar veitulagnir og mælabúnað

Lausnir Tonisco henta hitaveitum, vatnsveitum og iðnaði þar sem nauðsynlegt er að tengja inn á kerfi í rekstri á öruggan og skilvirkan hátt.

Platipus býður upp á áreiðanlegar lausnir til að festa niður rör og rörakerfi í krefjandi jarðvegsaðstæðum. 

Bendforce býður upp á einstaka einkaleyfisvarða aðferð við að kaldbeygja stálrör, bæði einangruð og óeinangruð í stærðunum DN100 til DN1000.

TIEMME Tiemme er leiðandi framleiðandi á íhlutum og kerfum fyrir hita- og vatnslagnir. Fyrirtækið býður upp á breitt vöruúrval, þar á meðal hefðbundinn koparfittings.

VAG er leiðandi framleiðandi loka fyrir vatns- og fráveitu. Fyrirtækið sérhæfir sig í lokum í stórum þvermálum, þar sem gerðar eru kröfur um mikla endingu, áreiðanleika og rekstraröryggi.

Radius AEON framleiðir fjölbreyttar tegundir loka fyrir vatns- og fráveitur. AEON bjóða einnig upp á margar tegundir brunahana.

EFFAST er leiðandi framleiðandi á PVC lokum og fittings fyrir þrýstilagnir. Bjóða líka upp á ABS, PPH og tengingar við PEH. Góð flóra í butterfly lokum.