GEOPLAST
Aquabox ofanvatnslausnir
Reiknivél fyrir Aquabox sjá hér: Aquabox calculator
Aquabox frá Geoplast - sjálfbær stjórnun ofanvatns
Aquabox frá Geoplast er einingakerfi fyrir söfnun, miðlun og geymslu regnvatns og ofanvatns. Kerfið er hannað til að mæta auknum áskorunum vegna mikillar úrkomu, leysinga og þéttbýlismyndunar þar sem náttúruleg upptaka vatns í jarðvegi hefur minnkað.
❋ Öryggi fyrir fráveituinnviðiFlóðavarnir í þéttbýli þar sem fráveitukerfi ná ekki að taka við skyndilegu vatnsmagni.
❋ Þétting byggðarSvæði þar sem mikilvægt er að draga úr álagi á fráveitukerfi og viðtaka.
❋ Skalanlegt kerfiEiningabyggingin gerir mögulegt að hanna lausnir af nánast hvaða stærð sem er, allt frá litlum söfnunarkerfum við einstakar byggingar upp í stór vatnsmiðlunarkerfi fyrir hverfi og innviði.
❋ Hentar undir umferðarsvæðiAquabox þolir mikið álag og er því hægt að staðsetja undir götum, bílastæðum, athafnasvæðum og öðrum svæðum þar sem umferð er.
❋ Mjög mikil geymslugetaAquabox nýtir allt að 96% af rúmmáli sínu til vatnsgeymslu, sem er margfalt meira en hefðbundnar malarfyllingar. Þetta þýðir minni uppgröft, minni flutningskostnað og hagkvæmari framkvæmdir.
❋ Umhverfisvæn áhrifSöfnun og endurnýting regnvatns til vökvunar, þrifa eða annarra nota.
❋ Aðgengi og hreinsunKerfið er 100% skoðanlegt og hægt er að framkvæma myndavélaskoðanir og hreinsun í gegnum sérstaka aðgengisbrunna. Þetta tryggir langtímaöryggi og einfalt rekstrarviðhald.
Ítölsk hönnun og hugvit
Ofanvatnslausnir fyrir framtíðina
Með Aquabox býður Norvion upp á nútímalega og hagkvæma lausn sem hjálpar sveitarfélögum að takast á við aukið magn ofanvatns, vernda innviði og nýta vatn sem verðmæta auðlind í stað þess að líta á það sem vandamál.

