Norvion vinnur með Bendforce
19.2.2025
Bendforce býður upp á einstaka einkaleyfisvarða aðferð við að kaldbeygja stálrör, bæði einangruð og óeinangruð. Með þessari aðferð sem þeir hafa þróað er mögulegt að beygja stálrör samkvæmt EN 253 – innan frá í stærðunum DN100 til DN1000. Allt án upphitunar. Þessi einstaka tækni opnar nýja möguleika í vinnslu og uppsetningu háhitalagna.
Beygjuvélarnar eru færanlegar og hægt er að setja þær upp með skömmum fyrirvara hvar sem er í heiminum, sem gerir tæknina sérstaklega hagkvæma og getur sparað óþarfa flutningskostnað á bogarörum.
Á heimasíðu Bendforce er hægt að reikna út mögulega gráðu á bogarörum: https://bendforce.com/en/services/

