Dagur Verkfræðinnar 2026

25.3.2025

Dagur verkfræðinnar var haldinn þann 20.Mars á Reykjavík Hilton Nordica á vegum Verkfræðingafélags Íslands. Þar kom fagfólk úr ólíkum greinum saman og deildi þekkingu og reynslu.

Valdimar Hjaltason frá Norvion hélt þar áhugaverðan fyrirlestur um háhitalagnir með sérstakri áherslu á nýjustu þróun í niðurgrafinni lagnatækni.
Farið var yfir hvernig ný efni, hönnun og framleiðsluaðferðir gera það nú mögulegt að leggja niðurgrafnar lagnir fyrir mun hærra hitastig en áður hefur verið talið raunhæft.

Þessi þróun opnar ný tækifæri í uppbyggingu og rekstri háhitakerfa, ekki síst í samhengi við auknar kröfur um orkunýtingu, rekstraröryggi og líftíma innviða. Hjá Norvion fylgjumst við náið með þessari þróun og leggjum áherslu á að miðla þekkingu og styðja við innleiðingu nýrra lausna á markaði.

Við þökkum Verkfræðingafélagi Íslands fyrir vel heppnaðan viðburð.

Upptöku af streymi má sjá hér: https://vimeo.com/event/5777846

Fyrirlestur Valdimars byrjar á tímanum 2:20:40

Next
Next

Nýjung - bogarör beygð á verkstað með Bendforce