Við brúum bilið milli hönnunar og reksturs
Norvion veitir sérhæfða þjónustu
og selur efni og búnað fyrir innviði
Norvion býður upp á:
Ráðgjöf – Sérfræðiráðgjöf fyrir öll lagna- og veitukerfi.
Heildsala – Gott framboð á lagnaefni og búnaði.
Skráning á póstlista
Norvion verður samstarfsaðili Geoplast á Íslandi - Ofanvatns- og regnvatnslausnir
Norvion hefur hafið samstarf við ítalska fyrirtækið Geoplast, sem er leiðandi framleiðandi lausna fyrir stjórnun ofanvatns og regnvatnssöfnunar fyrir sjálfbæra innviði.
Með samstarfinu bætist Aquabox kerfið við vöruframboð Norvion, en um er að ræða einingakerfi fyrir geymslu, miðlun og endurnýtingu regnvatns og ofanvatns. Lausnin hentar sérstaklega vel fyrir samgönguinnviði, iðnaðarsvæði, bílastæði og á þéttingarsvæðum byggðar þar sem þörf er á að draga úr álagi á fráveitukerfi og auka seiglu innviða gagnvart mikilli úrkomu og leysingum. Aquabox er hannað samkvæmt hugmyndafræði sjálfbærra ofanvatnslausna (SuDS) og nýtir allt að 96% af rúmmáli sínu til vatnsgeymslu.
Auk Aquabox býður Geoplast fjölbreytt úrval lausna fyrir nútímalega uppbyggingu innviða.
Nánari upplýsingar um Aquabox frá Geoplast má finna hér:
Traust vöruframboð fyrir alla innviði

