Norvion og AGRU efla samstarf sitt á Íslandi

29.10.2026

Brynjar frá Norvion ásamt Georg Offenthaler frá AGRU í Austurríki.

Norvion og austurríski framleiðandinn AGRU halda áfram að þróa og styrkja samstarf sitt á íslenskum markaði. Nýleg heimsókn til AGRU í Austurríki markar enn eitt skrefið í uppbyggingu samstarfsins, sem hefur verið til staðar frá stofnun Norvion.

AGRU er einn af leiðandi framleiðendum heims á sviði plaströrakerfa og tæknilausna fyrir meðal annars vatnsveitur, iðnað og aðra innviði. Fyrirtækið er þekkt fyrir hágæða vörur, nýsköpun og áreiðanlegar lausnir.

Í heimsókninni átti Brynjar Bergsteinsson, hjá Norvion, fund með Georg Offenthaler hjá AGRU þar sem farið var yfir áframhaldandi þróun samstarfsins og tækifæri á íslenskum markaði.

Aukið vöruúrval og betra aðgengi

Samhliða eflingu samstarfsins vinnur Norvion að því að auka lagerhald á vörum frá AGRU hér á landi, með sérstakri áherslu á rafsuðutengi og spegilsuðutengi fyrir vatnsveitur, verktaka og iðnað.

Með auknu lagerhaldi vill Norvion bæta aðgengi að vörum, stytta afhendingartíma og tryggja viðskiptavinum skjótari og betri þjónustu.

Vöruúrval og tæknileg sérþekking AGRU falla vel að áherslum Norvion um að bjóða vandaðar og áreiðanlegar lausnir fyrir íslenskan markað.

Langtímasamstarf byggt á trausti og þekkingu

Norvion leggur áherslu á að byggja upp öflugt langtímasamstarf við leiðandi evrópska framleiðendur. Markmiðið er að tryggja íslenskum viðskiptavinum aðgang að gæðavörum, tæknilegri sérþekkingu og samkeppnishæfum lausnum.

Heimsóknin til AGRU er liður í þeirri stefnu og endurspeglar sameiginlegan vilja fyrirtækjanna til að þróa samstarfið enn frekar á komandi árum.

Next
Next

Norvion og RK Infra undirrita einkasölusamning