Framkvæmdir við Borgarfjarðarbrú eru í fullum gangi.

25.06.2026

Hluti af lagnaefni frá Norvion komið á verkstað

Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun og stækkun veitulagna undir Borgarfjarðarbrú, þar sem unnið er að því að styrkja mikilvæga innviði fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi.

Borgarfjarðarbrú er 520 metra löng. Undir henni liggja meðal annars kaldavatns- og hitaveitulagnir sem þjóna Borgarnesi, ásamt rafmagns- og fjarskiptastrengjum. Hitaveitulögnin tengist Deildartunguæðinni, tæplega 70 km langri stofnæð sem liggur frá Deildartunguhver að Akranesi.

Framkvæmdirnar eru sérstaklega krefjandi þar sem vinnusvæðið undir brúnni er þröngt, þjóðvegur 1 liggur yfir vinnusvæðinu og straumharður sjór er undir því.

Norvion leggur sitt af mörkum til verkefnisins með afhendingu á hluta hitaveitulagna og búnaðar til verktakans Borgarverks.

Það er ánægjulegt fyrir okkur að taka þátt í verkefni sem þessu, þar sem vandaðar lausnir og öruggir innviðir skipta máli fyrir samfélagið til framtíðar.

Við þökkum Borgarverki fyrir traustið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við uppbyggingu mikilvægra innviða um land allt.

Nánar um framkvæmdina hjá Veitum:
https://www.veitur.is/frettir/unnid-undir-borgarfjardarbru

Previous
Previous

Norvion og RK Infra undirrita einkasölusamning

Next
Next

Geoplast - nýr samstarfsaðili Norvion